GÍTARGALDUR ← Til baka á Gítargaldur.is

Skalar 1

Ókeypis hjálpartæki fyrir gítarnám og kennslu.

Beta-útgáfa · Í þróun

Hvaða nótur eru í skalanum og hvernig spilum við þær á gítar? Skalar 1 sýnir þér nóturnar á gítarhálsinum ásamt fingrasetningum, TAB-i og nótnaskrift. Veldu grunntón og skala, skoðaðu mismunandi spilastöður og æfðu þig með spilun upp og niður á hraða sem hentar þér.

Í boði eru dúr, náttúrulegur moll, dúr- og mollpentatónískir skalar og blússkali. Þú getur skoðað opnar og lokaðar stöður, fyrstu fingrastöðu og yfirlit yfir hálsinn. Forritið sýnir valdar fingrasetningar og æfingaleiðir; það er ekki tæmandi safn allra skala eða allra leiða til að spila þá.

Þú getur líka séð skalann á píanói, skoðað tónbilin og fundið dúr- og molltóntegundir í fimmundarhringnum. Kennarar geta útbúið PDF með völdu efni eða afritað myndir fyrir kennsluna.

Yfirferð á skölum og fingrasetningum stendur yfir og efnið getur breyst.

Sendu mér línu ef þú finnur einhverjar villur.
olafur.magnus.torfason@gmail.com

Smelltu á netfangið til að opna póstforrit eða afritaðu það í tölvupóst.

SKALI

Skalaauðkenni (villutilkynningar)

Skoða hópinn

Grunntónn Aðrar nótur 1Ferkantaður reitur = fingur Utan fingrastöðu 6. strengur (þykkastur) vinstra megin · 1. strengur (þynnstur) hægra megin

Nótur og TAB

Byrjaðu þar sem „Byrja“ stendur og fylgdu nótunum til enda. Laus formerki eru sýnd við nóturnar.

Fingranúmer eru í ferköntuðu reitunum undir TAB-i: 1 = vísifingur · 2 = langatöng · 3 = baugfingur · 4 = litli fingur · 0 = opinn strengur.

Hálsmyndin, nóturnar og TAB lýsa sömu nótu. Stjórnaðu spilun og hraða í stikunni efst.

Gítarnótur í G-lykli hljóma áttund neðar en ritað er.

Skalahópur á gítarhálsi 0

Bættu við allt að 12 hálsmyndum og raðaðu þeim áður en þú sækir eina mynd af hópnum. Hópurinn helst meðan síðan er opin.

    Sækja kennsluefni

    PNG-myndir og PDF fylgja alltaf völdum skala. PDF uppfærist sjálfkrafa þegar þú breytir skala eða velur annað efni í PDF. Nótur og TAB fá sérsíðu og raðast saman þegar hvort tveggja er valið.

    Hakarnir velja aðeins efni í PDF

    „Afrita PNG“ afritar mynd af skalanum sem er valinn núna. Þú þarft ekki að haka við neitt til að afrita PNG. Límdu hana í Google Docs eða Slides með Ctrl+V (⌘V á Mac). Myndin er merkt Gítargaldri og vefslóðinni.

    Myndirnar eru allt að 720 × 960 px og rúmast í um 6 × 8 cm reit, til dæmis í 3 × 3 reita töflu á A4.

    Sendu mér línu ef þú finnur einhverjar villur: olafur.magnus.torfason@gmail.com.

    © Gítargaldur – Ólafur Torfason. Kennurum er heimilt að nota efnið í gítarkennslu og annarri kennslu. Óheimilt er að birta það annars staðar.

    Píanó: Salamander Grand Piano · Alexander Holm · CC BY 3.0